Gera efsta hluta Brautarholts að einstefnugötu
Legg að Brautarholti frá Nóatúni að Skipholti verði breytt í einstefnugötu. Sennilega til vesturs. Gatan er bæði þröng og hættuleg, sérstaklega í beygjunni sunnan við Heklu. Þar eru að jafnaði bílar sem lagt er ólöglega eða illa og takmarka umferð. Einstefna í aðra hvora áttina myndi minnka óþarfa umferð og slysahættu.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation