Þar sem að Jötnaborgir er botnlangi vantar tengingu milli götunnar og gangstígs fyrir ofan hana. Ekki er hægt að komast með góðu móti frá götunni að göngustíg nema eftir troðnum slóða sem er í misjöfnu ástandi eftir árstíðum. Þarna er mikil slysahætta og ástandið á troðningnum skemmir gangstétt og götu.
Mikið er um að fólk komi inn í götuna en engin leið er út botnlanganum. Því gengur það upp troðning til að komast upp á malbikaða stíginn fyrir ofan götuna. Í rigningartíð rennur mikið magn vatns þarna niður sem að leysir upp jarðveginn og ber með sér niður á götuna sem skemmir og skapar hættu þegar gangandi vegfarendur reyna að komast þarna á milli við misjafnar aðstæður. Að vetri er þarna hálka og enn meiri slysahætta fyrir fólk.
Sonur minn notar þessa leið þegar hann hjólar í skólann. Það myndi hjálpa mikið að bæta úr með því að malbika þennan stutta 20m spotta.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation