Framlenging á hljóðmön sem liggur meðfram Gullinbrú, þannig að þau nái alveg að gatnamótunum Gullinbrú/Fjallkonuvegur.
Við íbúar í Hamrahverfinu sem búum við gatnamótin Gullinbrú - Fjallkonuvegur hefðum gjarnan viljað fá framlenginu á hljóðmön sem liggur meðfram Gullinbrú sitthvoru megin við gatnamótin. Það er mikið ónæði af umferðinni á þessum gatnamótum frá klukkan 7:00 - 0:00 alla daga vikunnar. Þetta er kannski ekkert þungavigtarmál en hefur mest áhrif á nokkur fjölbýlishús sem liggja við þessa götu, auk þess að þetta nær eitthvað inn í hverfið.
Sammála rökum Örvars hér að neðan þetta er alveg óþolandi að geta ekki haft glugga eða svalir opnar allt árið um kring vegna hávaða og rykmengunar frá umferð.
Sammála :) Alltof mikil hljóðmengun og á hverju grænu ljósi fer vörubíll yfir gatnamótin, tala nú ekki um allar spyrnurnar hér á sumarkvöldum!
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation