Tengja göngustíg við Nónás við göngustíg kringum Reynisvatn
Við frágang göngustígs, sem liggur meðfram Leirdalnum og áfram undir norðanverðum Nónás, var bara skyndilega hætt í miðju skóglendi. Frábært væri að þarna yrði haldið áfram og lokið við að tengja þennan göngustíg niður að Reynisvatninu, svo ekki þurfi að ganga í gegnum urð og grjót. Með þessu yrði lokið við samfelldan göngustíg og stuðlað að enn betri útivist í hverfinu.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation