Ég óska eftir því að settur verði upp áningarstaður með bekkjum og æfingartækjum á göngu- og hjólreiðastíg milli Grafarholts og Hádegismóa, rétt fyrir neðan Ólafsgeisla við gamla golfæfingasvæði GR. Sambærilegir áningarstaðir hafa verið settir upp víða í Borginni, m.a. í Fossvogsdal sem má sjá á meðfylgjandi mynd.
Það er mikil umferð göngu- og hjólreiðamanna á þessu svæði, um að gera að koma þessu í úthverfin líka.
Þessi hugmynd var færð úr Hverfið mitt 2016 og hægt er að finna hana hér: https://hverfid-mitt-2016.betrireykjavik.is/post/7385
Ég endurvakti þessa hugmynd og vona að hæun hljóti brautargengi. Skil ekki hversvegna hún var fjarlægð.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation